top of page

Forsetinn staðfestir lög um veiðigjöld

Forseti Íslands,Ólafur Ragnar Grímsson, hefur staðfest lög um veiðgjöld. Forsætisráðuneytið staðfesti þetta í samtali við fréttastofu RÚV. Samkvæmt lögunum mun útgerðin greiða hátt í þrettán milljarða króna á næsta ári fyrir afnot af fiskveiðiauðlindinni.

Ólafur Ragnar sagði í viðtali í upphafi baráttu sinnar fyrir endurkjöri að fá mál væru jafn vel til þess fallin að fara í þjóðaratkvæði þar sem þjóðin sjálf tæki afstöðu til þess hvernig hún vildi ráðstafa sameign sinni. Erfitt væri að hugsa sér stærra mál sem eðlilegt væri að setja í þjóðaratkvæðagreiðslu ef einhver hluti þjóðarinnar teldi það mikilvægt. Hann hlyti því að hugleiða það mjög alvarlega hvort málinu yrði vísað í þjóðaratkvæði eða ekki.

Lögin um veiðigjöld voru mjög umdeild, bæði inná Alþingi og utan þess. Þau hafa verið harðlega gagnrýnd af bæði stjórnarandstöðunni og fulltrúum sjávarútvegsins. Ekki náðist að ljúka málinu fyrr en samið var um að fresta öðrum málum til hausts. Lögin bárust forsætisráðuneytinu undirrituð á miðvikudag.

Sjá frétt á ruv.is..


Helstu færslur
Nýlegar færslur
Eldri færslur
Leit eftir leitarorðum
No tags yet.
Fylgstu með okkur
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
bottom of page