top of page

Um samtökin

 

 

Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda. SFÚ voru stofnuð 1994 en hétu í upphafi Samtök fiskvinnslu án útgerðar. Félagar í SFÚ eru stærstu samtök landsins í fiskvinnslu sem kaupa hráefni sitt  í umhverfi frjálsrar verðmyndunar. Innan vébanda samtakanna starfa stór og meðalstór fiskvinnslufyrirtæki sem hafa verið leiðandi í framleiðslu og markaðssetningu fiskafurða um árabil eða frá því fiskmörkuðum á Íslandi var hleypt af stokkunum árið 1987. Elstu fyrirtækin innan samtakanna eru þó nokkru eldri eða yfir 30 ára gömul.

Samtökin hafa um árabil beitt sér fyrir frelsi í viðskiptum með fisk og að allur fiskur fari á innlendan markað og að fjárhagslegum aðskilnaði veiða og vinnslu verði komið á. Hafa fyrirtæki innan SFÚ löngum greitt hæðstu meðalverð fyrir hráefni sem í boði hefur verið, útgerðum og sjómönnum til hagsbóta.

 

Valmynd

bottom of page