SFÚ - fagna breytingum á stjórn fiskveiða
Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda – SFÚ
fagna breytingum á stjórn fiskveiða.
Skref í rétta átt þó enn megi gera betur.
Nýsamþykktar breytingar um stjórn fiskveiða, sem kveða á um lækkun heimildar til flutnings aflamarks milli ára úr 33% í 10% á yfirstandandi fiskveiðiári og hækkun línuívilnunar úr 16% í 20 % ásamt 15% línuívilnunar til dagróðrabáta sem stokka línu í landi, tryggja að aukið hráefni berist að landi.
Aukið hráefni er nauðsynlegt eigi fiskvinnslur ekki að þurfa að loka vegna hráefnisskorts í sumar. Þessar nýsamþykktu breytingar á stjórn fiskveiða eru því skref í rétta átt en betur má ef duga skal.
Nauðsynlegt er að festa strandveiðar í lög sem allra fyrst, það mun tryggja betri aðgang að fiski yfir sumarmánuðina fyrir allar þær vinnslur sem eru starfandi.
SFÚ áréttar þá skoðun sína að Sjávarútvegsráðherra sé óhætt að auka aflaheimildir í þorski um 43 þús tonn strax. Það ætti ekki að hafa skaðleg áhrif á þorskstofninn, eins og lesa má úr gögnum Hafrannsóknarstofnunar auk þess sem núverandi aflaheimildir eru mjög lágar í sögulegu samhengi. Jafnframt telja sjómenn um allt land að miðin séu full af þorski.
Þessar aðgerðir skipta miklu máli og gætu komið í veg fyrir lokun margra fiskvinnslustöðva yfir sumarmánuðina, einmitt á þeim tíma er skólafólk vantar atvinnu. Möguleikar atvinnulausra og námsmanna á því að fá atvinnu, a.m.k. nú á sumarmánuðum, munu því aukast með þessum aðgerðum. Hvert lítið skref til atvinnuuppbyggingar í núverandi árferði atvinnuleysis skiptir miklu og mörg smá skref skila að lokum atvinnu fyrir alla.
Elín Björg Ragnarsdóttir
„SFÚ telur að þær smáu breytingar sem gerðar hafa verið á fiskveiðistjórnunarkerfinu séu skref í rétta átt til þess að hægt verði að halda fiskvinnslunum í rekstri í sumar. Hinsvegar geti stjórnvöld ekki dregið lappirnar lengur í því að auka við aflaheimildir.“
Frekari upplýsingar veitir: Elín Björg Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri SFÚ, í síma 898 7080.