Skýrsla stóru nefndarinnar frá 2010
Nú er ljóst að ekki kemur fram frumvarp frá ríkisstjórninni um breytingu á lögum um fiskveiðistjórnun. Þetta er vegna ágreinings milli ríkisstjórnarflokkanna um það hvort þjóðin hafi forræði yfir kvótanum eða útgerðin.
Samkeppnisumhverfi í sjávarútvegi er óboðlegt og litlar líkur á að sá samkeppnishalli sem sjálfstæðir fiskframleiðendur þurfa að þola verði leiðréttur nema í gegnum nýja löggjöf um fiskveiðistjórnun. Enginn vilji virðist vera til þess í sjávarútvegsráðuneytinu að koma á eðlilegu samkeppnisumhverfi í sjávarútvegi þrátt fyrir eindregin tilmæli frá Samkeppnisyfirvöldum.
Til upprifjunar er hér birt skýrsla stóru nefndarinnar, sem svo var nefnd, frá 2010. Bókanir SFÚ má sjá á bls. 83-84.