top of page

SFÚ skorar á ráðherra að auka aflaheimildir!


Stjórn SFÚ hefur skorað á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að auka aflaheimildir strax á þessu kvótaári í ljósi góðrar útkomu úr marsralli Hafró, sem sýndi botnsfiskstofna sterkari en nokkru sinni fyrr frá því mælingar hófust 1985.

Stjórnin lýsti jafnfram furðu sinni á ummælum Kolbeins Árnasonar, framkvæmdastjóra SFS, sem lýsti þeirri skoðun sinni að ekki skyldi auka aflaheimildir á þessu kvótaári.

Í áskorun stjórnar SFÚ felst að auknar aflaheimildir verði inn á strandveiðar sem skipta gríðarlega miklu máli fyrir framboð á hráefni inn á fiskmarkaði á sumrin. Ófremdarástand hefur verið á fiskmörkuðum í allan vetur ekki síst vegna ótíðar.

Ályktunina má lesa hér.


Helstu færslur
Nýlegar færslur
Eldri færslur
Leit eftir leitarorðum
No tags yet.
Fylgstu með okkur
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
bottom of page