Hörð gagnrýni á makrílfrumvarp sjávarútvegsráðherra


Í dag, miðvikudaginn 6. maí, birtust tvær greinar um makrílfrumvarpið og fiskveiðistjórnun, önnur í Fréttablaðinu og hin í Markaðinum, sem fylgir Fréttablaðinu á miðvikudögum.
Greinin í Fréttablaðinu er eftir Skúla Magnússon, lögfræðing, og nefnist hún Kúvending í fiskveiðistjórn? Í henni er bent á að það er grundvallarbreyting á íslenskri fiskveiðistjórn að aflahlutdeild skuli úthluta til langs tíma og ekki sé hægt að segja þeirri úthlutun upp nema með sex ára fyrirvara.
Hin greinin er birt í Markaðinum undir efnisdálkinum, Skjóðan, sem er nafnlaus dálkur sem beinir spjótum sínum að ýmsum málefnum líðandi stundar. Skjóðan í dag er undir yfirskriftinni, Kvótann heim! Þar er fjallað um einokunargróða útgerðarinnar á Íslandi og ástandinu í fiskveiðistjórnun hérlendis líkt við einokunarverslun danksa konungsins. Munurinn sé sé að það séu örfá einkafyrirtæki sem fái einokunina á fiskinum í sjónum.