SFÚ kallar eftir samtakamætti kaupenda

SFÚ hefur sent frá sér tilkynningu vegna ummæla framkvæmdastjóra Fiskmarkaðar Íslands (FMÍ) í viðtali við fylgirit Morgunblaðsins í lok síðasta mánaðar og þagnar stjórnar FMÍ vegna þess máls.
Í téðu viðtali lýsir framkvæmdastjórinn þeirri skoðun sinni að hin svonefnda „óslitna virðiskeðja“ sé ákjósanleg í íslenskum sjávarútvegi en ágætt sé að fiskmarkaðir taki við þeim afla sem útgerðarvinnslur geta ekki unnið sjálfar. Þetta lýsir fullum fjandskap í garð kaupenda á markaði og hefur sá fjandskapur ennfremur birst í gjaldskrá og þjónustu (þjónustuleysi?) FMÍ við kaupendur.
Af þessu tilefni hvetur SFÚ aðildarfyrirtæki sín til að vanda valið á fiskmörkuðum dagana 26., 29. og 30. október næstkomandi og beina viðskiptum sínum til markaða sem sannanlega gæta hagsmuna bæði seljenda og kaupenda og stilla gjaldtöku af kaupendum í hóf.
Þá hefur SFÚ hafið undirbúning að stofnun fiskmarkaðar sem skal gæta hagsmuna beggja, seljenda og kaupenda. Fiskmarkaður SFÚ ehf. hefur verið stofnaður.
Fréttatilkynninguna má lesa hér.