Ráðherra svíkur gefin loforð og virðir Samkeppniseftirlitið að vettugi

Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur látið embættismenn ráðuneytisins svara bréfi sem Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, og Jón Steinn Elíasson, formaður SFÚ, rituðu honum 3. desember sl. Í svarbréfinu kemur fram að ráðherra hyggst ekkert aðhafast þrátt fyrir bein tilmæli frá Samkeppniseftirlitinu um að hann grípi til aðgerða sem dragi úr skaðsemi þeirrar tilhögunar sem höfð er við verðmyndun á sjávarfangi og dregur úr framboði á fiskmörkuðum. Þar með hefur ráðherra jafnframt svikið loforð sem hann gaf í eigin persónu á fundi hjá FA rétt fyrir alþingiskosningarnar 2013.
Svarbréf embættismanna ráðherra má lesa hér.