Stærsti leikur sögunnar. Áfram Ísland!

Strákarnir okkar hafa staðið sig frábærlega á EM í Frakklandi og spila í kvöld enn einn stærsta leik sögunnar. Á þjóðarleikvangi Frakka í París mæta þeir Austurríkismönnum og jafntefli tryggir sæti í 16 liða úrslitum. Sigur gæti gefið okkur efsta sætið í riðlinum. Hvernig sem leikurinn fer í kvöld hafa landsliðsmennirnir okkar verið landi og þjóð til sóma og sama má sannarlega segja um landsliðsþjálfarana, þá Lars Lagerbäck og Heimi Hallgrímsson. Við höfum fulla trú á þeim í kvöld. Áfram Ísland!