Áfram Ísland! Þið eruð glæsilegir!

Í kvöld mæta strákarnir okkar aftur á Stade de France, þjóðarleikvang Frakka, og mæta nú heimamönnum í átta liða úrslitum EM! Þvílíkt lið, þvílíkur andi, þvílíkur sómi sem hefur verið af leikmönnum, þjálfurum og öllum íslenskum áhorfendum í Frakklandi og hér heima! Strákarnir eru sigurvegarar hvernig sem fer en við höfum trú á þeim! Áfram Ísland!