SFÚ fagnar yfirlýsingu Axels

SFÚ hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem því er fagnað að Axel Helgason, formaður Landssambands smábátaeigenda, segir að ranglega hafi verið gefið í skyn að hann teldi kaupendur á fiskmörkuðum hafa með sér samráð um kaup á fiski á uppboðum.
Hagsmunir sjálfstæðra fiskframleiðenda og smábátasjómanna fara saman og snúast í grunninn um að fiskmarkaðir verði að vera sem öflugastir, þannig að verðmyndun þar sé eðlileg. Einnig skiptir miklu máli að fullt gegnsæi sé um viðskipti á fiskmörkuðum og að upplýsingar á uppboðsvefnum séu sem ítarlegastar.
Yfirlýsingu SFÚ er hægt að lesa hér.