Heilbrigða samkeppni þjóðinni og neytendum til heilla

Í ályktun, sem aðalfundur SFÚ samþykkti í gær, er lögð áhersla á að enginn ferskur fiskur verði fluttur úr landi án þess að hann hafi fyrst verið boðinn til sölu á opnum uppboðsmarkaði hér á landi.
SFÚ skorar á stjórnvöld að skapa sjávarútveginum heilbrigt samkeppnisumhverfi með því að stuðla að réttri verðmyndun á afla. Slíkt stuðli að réttu uppgjöri útgerðar, rétti uppgjöri til sjómanna, réttum hafnargjöldum, réttum gjöldum til hins opinbera og réttu verði til neytenda.
SFÚ skorar á stjórnvöld að tryggja meðlögum fjárhagslegan aðskilnað veiða og vinnslu, þar sem veiðarnar eru reknar í skjóli opinbers einkaleyfis eða verndar á sama tíma og vinnsluhlutinn er í frjálsri samkeppni. Ekki sé hægt að sýna fram á rétta rentu af auðlindinni á meðan hægt er að flytja arðinn af veiðum yfir á vinnslu.
SFÚ leggur áherslu á að meira hráefni skili sér inn á fiskmarkaðina og bendir á að mikilvægt er að ívilna útgerðum, sem landa afla á íslenskum fiskmörkuðum.
Ályktunina er hægt að lesa í heild hér.